4. mars 2026 - afmælisdagur mömmu
"Tíminn líður áfram og hann teymir mig á eftir sér" orti skáldið.
Í dag er afmælisdagur mömmu. Ég er búinn að ganga með það í höfðinu í líklega tvo mánuði að hún hefði orðið 85 ára í dag...en nei hún hefði orðið 87! Mér brá svolítið. Önnur hugsun poppaði svo upp. Ég verð 55 ára í ár. Sami aldur og þegar mamma fór frá okkur. Mér finnst ég eiga nóg eftir. Það eru ennþá nokkrar uppskriftir eftir sem ég þarf að prófa, staðir að heimsækja, börn að vaxa úr grasi, og nú hvolpur að stíga sín fyrstu skref í lífinu, og liggur við fætur mér.
Ég veit ekki hvernig mamma hefði tekið Internetinu. Líklega með opnum örmum þar sem hún var alltaf að grúska eitthvað. Hún hefði líklega verið á 1000 uppskriftasíðum og svo auðvitað eitthvað tengdum ferðalögum.
Ég prófaði að "gúggla" mömmu í dag. Fyrsta og eiginlega það eina sem kemur fram eru minningagreinar úr Morgunblaðinu í septemberbyrjun 1994.
Fyrsta minningagrein er frá Bebbu, sem fór frá okkur í fyrra. Hennar minningagrein er yndisleg og ljóðið sem hún leggur við frá Davíð Stefánssyni fallegt og læt það koma hér:
Þú hlærð, svo himnamir ljóma.á heillandi dans minna öll þín spororð þitt er ilmur blómaást þín gróandi vor,sál þín Ijósið, sem ljóma vefurum löndin og bræðir hjamið kalt.í hvílunni engin jafn sólhvít sefurÞú gefur - og gefur allt.
(Davíð Stefánsson.)
Njótið dagsins og munið að njóta þess að vera í núinu. Ég ætla að reyna það í dag. Ekki eitthvað sem ég á auðvelt með
.
Sjávarréttasúpa a la Herdís (Dísa) í kvöld.
Knús.

Ummæli